Vitund og verkfæri
Sameiginlegur skilningur á hlutverki stjórnenda og fyrstu skrefunum.
Hentar: sem fyrsta skref – vitundarvakning og sameiginlegt tungumál í stjórnendahópnum.
Hagnýtar vinnustofur og ráðgjöf fyrir stjórnendur sem vilja styðja við heilsu og vinnufærni starfsfólks. Stjórnendur læra að greina fyrstu merki um vanda, taka erfið samtöl af öryggi, halda góðum tengslum í veikindafjarveru og skipuleggja farsæla endurkomu til vinnu.
Að þekkja fyrstu merki um vanda – áður en þau verða að fjarveru
Að opna samtal um líðan og vinnufærni af virðingu og öryggi
Að halda góðum tengslum í veikindum – án þrýstings
Að skipuleggja endurkomu sem heldur – og bregðast við bakslagi
Vinna getur bæði verndað heilsu og skaðað hana – og stjórnandinn er oft sá sem getur gripið fyrst inn í. Í vinnustofunum fá stjórnendur þekkingu, hagnýt verkfæri og þjálfun til að takast á við þessar aðstæður.
Við skoðum hvernig stjórnun, samskipti og skipulag vinnunnar geta stutt við heilsu starfsfólks og hvernig bregðast má við þegar vinnufærni skerðist. Áherslan er alltaf á vinnuna, aðstæðurnar og mögulegan stuðning – ekki á sjúkdómsgreiningar.
Skoða leiðirnar fjórarHjá okkur starfa læknar, hjúkrunarfræðingar, sálfræðingar og mannauðsráðgjafar sem vinna daglega með fjarveru, endurkomu og vinnufærni – fræðslan byggir á þeirri reynslu.
Vinnustofa A er alltaf grunnurinn. Þaðan er hægt að bæta við verklegri þjálfun í vinnustofu B, greiningu og ráðgjöf – eða hvoru tveggja.

Þekking og verkleg þjálfun í samtölum, stuðningi og endurkomu til vinnu.
Hentar: stjórnendum sem eiga að geta beitt verkfærunum strax.
Fræðsla fyrir stjórnendur ásamt mati á stöðu vinnustaðarins og næstu skrefum.
Hentar: yfirstjórn sem vill stöðumat og aðgerðaáætlun án þjálfunar.
Þjálfaðir stjórnendur og verkfæri og verklag sem er aðlagað að vinnustaðnum.
Hentar: vinnustöðum sem vilja bæði þjálfaða stjórnendur og kerfi sem styður þá.
Samfellukort Vinnuverndar er rauði þráðurinn í báðum vinnustofum. Það sýnir hvað þarf að gerast á hverju stigi og hver ber ábyrgð – stjórnandinn, mannauður, Vinnuvernd eða starfsmaðurinn sjálfur. Þátttakendur fá kortið á einni síðu.
Breytingar á líðan, hegðun eða frammistöðu – eða starfsmaður óskar sjálfur eftir stuðningi.
StjórnandiStjórnandi opnar samtal og saman er metið hvort einföld aðlögun dugi.
StjórnandiDugi fyrstu aðgerðir ekki koma Vinnuvernd og mannauður inn í málið.
Vinnuvernd og mannauðurSkipulögð, stígvaxandi endurkoma þar sem vinnan er aðlöguð – ekki bara starfshlutfallið.
Stjórnandi og starfsmaðurStaðan er endurmetin eftir 28 og 90 daga og áætlun lagfærð eftir þörfum.
Stjórnandi og starfsmaðurStarfsmaðurinn er aftur virkur í starfi með þann stuðning sem þarf.
Stjórnandi og starfsmaðurVinnustofa A gefur skilning og verkfæri. Vinnustofa B snýst um að æfa þau, svo stjórnendur geti beitt þeim strax í eigin starfi.
Hlutverk stjórnenda í að skapa heilbrigt starfsumhverfi, greina fyrstu merki um vanda og styðja starfsfólk þegar veikindi hafa áhrif á vinnu.
Byggir á vinnustofu A. Stjórnendur æfa samtölin í þriggja manna hópum – stjórnandi, starfsmaður og áhorfandi – og hvert samtal er endurtekið eftir endurgjöf.
Hvernig stöndum við og hvað ætlum við að gera? Greining og ráðgjöf er unnin með mannauði og yfirstjórn – ekki með öllum stjórnendahópnum. Það sparar tíma stjórnenda og gefur vinnustöðum sem vilja dýpri vinnu skýra leið að henni.
Skýr mynd af stöðunni og forgangsröðun næstu skrefa.
Ykkar eigin samfella, verkfæri og 90 daga aðgerðaáætlun.
Eigin tölur vinnustaðarins nýtast í vinnustofunni og hún verður persónulegri.
Nafnlaus dæmi og „ykkar samfella“ eru notuð í æfingunum í B.
Byggir á reynslu stjórnenda og festir verkfærin í verklagi vinnustaðarins.
Báðar leiðir ganga upp. Bil á milli vinnustofa skilar þó meiri árangri, því stjórnendur mæta þá í B með eigin reynslu af verkfærunum.
3–6 vikur á milli vinnustofa
Um 7 klst. með hádegishléi
Hæfilegur hópur er 8–16 stjórnendur í hvorri vinnustofu. Í vinnustofu B er æft í litlum hópum og þar skiptir hópstærðin miklu máli. Stærri stjórnendahópum skiptum við upp í fleiri hópa.
Nei, engin forvinna er nauðsynleg fyrir vinnustofur A og B. Ef greining og ráðgjöf er valin skipuleggjum við gagnaöflun í samráði við ykkur.
Vinnustofurnar eru haldnar á ykkar vinnustað eða á stað sem hentar ykkur.
Nei. Áherslan er á vinnuna, aðstæðurnar og mögulegan stuðning – ekki sjúkdómsgreiningar. Persónuvernd og mörk eru sérstakur hluti af þjálfuninni og dæmi úr greiningu eru alltaf nafnlaus.
Já. Með greiningu og ráðgjöf eru verkfærin aðlöguð að ykkar vinnustað og „ykkar samfella“ kynnt í vinnustofunum í stað almenna líkansins.
Hafðu samband og við hjálpum ykkur að velja leið sem hentar þörfum og stærð vinnustaðarins.