FRÍSK & FÆR
Hvernig getum við fyrirbyggt óvinnufærni, stutt betur við heilsu starfsfólks og dregið úr fjarvistum?
Vinnuvernd býður til hálfsdagsráðstefnunnar FRÍSK & FÆR í Grósku fimmtudaginn 3. september 2026 kl. 8:30–12:30.
Á ráðstefnunni verður sjónum beint að því hvernig vinnustaðir geta brugðist fyrr og markvissar við veikindum, stutt farsæla endurkomu til vinnu og skapað aðstæður sem efla starfshæfni til lengri tíma.
Dagskráin sameinar fagleg erindi, raunhæf dæmi úr atvinnulífinu og pallborðsumræður með fulltrúum ólíkra aðila vinnumarkaðarins.
Þátttaka er öllum opin og án endurgjalds, en sætafjöldi er takmarkaður
Dagskráin
Húsið opnar kl. 8:30 - móttaka
Gestir eru boðnir velkomnir frá kl. 8:30, kaffi verður í boði áður en dagskrá hefst.
08:45 - Frísk & fær til framtíðar
Valgeir Sigurðsson, stofnandi og yfirmaður þjónustusviðs Vinnuverndar
Mun opna ráðstefnuna með hugleiðingu um hvert samfélagið er að stefna og hvernig við getum stutt betur við heilsu starfsfólks og skapað raunhæfar leiðir til að efla starfshæfni og draga úr fjarvistum.
09:10 - Vinna í umbreytingu
Anna Steinsen, fyrirlesari og stjórnenda- og heilsumarkþjálfi
Fjallar um breytt viðhorf ólíkra kynslóða til vinnu og vinnumarkaðarins og hvernig vinnustaðir geta mætt nýjum væntingum og breyttum áherslum.
09:30 - Að greina réttan vanda
Áslaug Kristinsdóttir, sálfræðingur og mannauðsráðgjafi, Ása Elísa Einarsdóttir, sérfræðingur og trúnaðarlæknir hjá Vinnuvernd
Munu þær beina sjónum að mikilvægi þess að greina hvar vandinn raunverulega liggur þegar unnið er með veikindi, starfsgetu og endurkomu til vinnu. Báðar hafa þær mikla reynslu í störfum með einstaklingum sem eru frá vinnu vegna veikinda.
10:00 - Umræður
Ólöf Skaftadóttir, fjölmiðlakona og almannatengill
Stýrir umræðum um erindi morgunsins. Gestum gefst færi á að leggja fram spurningar, deila sjónarmiðum og taka þátt í samtalinu.
10:20 - Kaffihlé og léttar veitingar
Stutt kaffihlé þar sem gestum gefst tækifæri til að fá sér hressingu, bera saman bækur sínar og tengjast öðrum þátttakendum.
10:40 - Vinnustaðir fyrir ólíka starfsgetu
Jóhanna Birna Bjartmannsdóttir, stofnandi og framkvæmdastjóri HARTS
Fjallar um hvernig vinnustaðir geta stutt starfsfólk með ólíkar líkamlegar eða andlegar áskoranir og skapað aðstæður þar sem fólk getur sinnt starfi sínu þrátt fyrir tímabundnar eða langvarandi takmarkanir.
11:00 - Reynsla Hafnarfjörðarbæjar
Lind Einarsdóttir, mannauðsstjóri & Dröfn Gunnarsdóttir, mannauðsfulltrúi Hafnarfjarðar
Segja frá þeirri vinnu sem hefur farið fram hjá Hafnarfjarðarbæ til að ná niður langtímaveikindum og hvaða áherslur hafa reynst gagnlegar í þeirri vegferð ásamt því hverju þau eru að vinna að í dag í tengslum við skammtímafjarveru.
11:20 - Þegar samskiptavandi verður heilsuvandi
Sigríður Indriðadóttir, Stjórnendaráðgjafi, fyrirlesari og samskiptaþjálfar
Fjallar um samskiptavanda á vinnustöðum og hvernig óleyst vandamál geta haft áhrif á líðan, veikindi og starfsgetu.
11:45 - Pallborðsumræður - Getum við gert betur saman?
Ólöf Skaftadóttir, fjölmiðlakona og almannatengill, er fundarstjóri ráðstefnunnar og stýrir pallborðsumræðunum.
Ráðstefnunni lýkur með pallborðsumræðum um ábyrgð, samstarf og raunhæfar lausnir þegar kemur að veikindum, starfshæfni og fjarvistum.
Fulltrúar ólíkra aðila vinnumarkaðarins ræða meðal annars:
- Hvar liggur ábyrgðin þegar starfsmaður glímir við skerta starfsgetu?
- Hvað hindrar snemmtæk og markviss viðbrögð?
- Hvernig geta vinnustaðir, heilbrigðiskerfið, stjórnvöld og aðilar vinnumarkaðarins unnið betur saman?
- Hvaða breytingar gætu skilað raunverulegum árangri fyrir fólk og vinnustaði?
Meðal gesta í pallborði verða:
- Íris Róbertsdóttir, Bæjarstjóri Vestmanneyja
- Gylfi Arnbjörnsson, fyrrverandi forseti ASÍ
- Ásamt fyrirlesurum ráðstefnunnar
- Gestum gefst einnig tækifæri til að taka þátt í samtalinu
Hagnýtar upplýsingar
hér er að finna aðrar hagnýtar upplýsingar tengdar ráðstefnunni
Undanfarna mánuði hefur umræða um fjarvistir, veikindarétt og álag á vinnumarkaði verið áberandi. Minna hefur þó farið fyrir samtali um framkvæmdina sjálfa: hvernig vinnustaðir, stjórnendur, mannauðsfólk og fagaðilar geta unnið saman að því að fyrirbyggja óvinnufærni, styðja starfsfólk í veikindum og auðvelda farsæla endurkomu til vinnu.
Á ráðstefnunni verður fjallað um spurningar á borð við:
- Hvernig er best að vinna með veikindi á vinnustöðum?
- Hvar liggja helstu áskoranirnar í dag?
- Hvernig má greina vandann fyrr og bregðast betur við?
- Hvaða hlutverki gegna stjórnendur, mannauðsfólk, heilbrigðisstarfsfólk, stéttarfélög og atvinnurekendur?
- Og hvað getum við gert betur — saman?
Ráðstefnan er ætluð stjórnendum, mannauðsfólki, heilbrigðisstarfsfólki, atvinnurekendum, fulltrúum stéttarfélaga og sveitarfélaga, ráðgjöfum og öðrum sem vilja stuðla að heilbrigðari og sjálfbærari vinnumarkaði.
Markmiðið er að þátttakendur fari heim með ný sjónarhorn, hagnýtar hugmyndir og skýrari sýn á hvernig hægt er að fyrirbyggja óvinnufærni og styðja betur við starfshæfni.
Þátttaka er öllum opin og án endurgjalds.
Markmiðið er að skapa faglegan vettvang fyrir samtal, reynslumiðlun og nýjar nálganir í málaflokki sem snertir bæði einstaklinga, vinnustaði og samfélagið í heild.
Með ráðstefnunni vill Vinnuvernd leggja sitt af mörkum til umræðu sem byggir á þekkingu, reynslu og lausnamiðaðri nálgun — með það að leiðarljósi að fleiri geti verið frísk og fær til þátttöku á vinnumarkaði.
