Skip to Content

Veldu þá þjónustu sem þú vilt bóka tíma

Trúnaðarlæknisþjónusta
Vinnuvernd ehf.
Lýsing á þjónustu: 

Þjónustan felst í að trúnaðarlæknir er tengiliður á milli vinnustaðar og starfsmanns hvað varðar sjúkdóm, áætlaða tímalengd veikindafjarvista, endurheimt starfshæfni og skipulagningu á endurkomu til starfa. Trúnaðarlæknir gætir fyllsta trúnaðar við starfsmann hvað varðar allar upplýsingar um sjúkdóm og önnur heilsufarstengd vandamál. 

Í starfi trúnaðarlæknis eru hagsmunir starfsmanna hafðir að leiðarljósi í samræmi við Codex Ethicus 2021, II. kafli, gr. 11 og Lög um heilbrigðisstarfsmenn 2012 nr. 34, III. Kafli gr. 17.

Trúnaðarlæknisþjónusta Hafnarfjörður

Viðverusamtal Hafnarfjörður
Vinnuvernd Holtasmári 1
Heilbrigðisskoðanir flug
Vinnuvernd ehf.

Vinsamlegast athugið:

  • Minnum á að flugmenn og flugliðar sem áður hafa farið í heilbrigðisskoðun eiga að mæta með heilbrigðisskírteini sitt og persónuskilríki í skoðun.
  • Fylla þarf út eyðublað Samgöngustofu fyrir komu í tímabókun (hægt er að hlaða því niður með því að smella á hlekk hér að neðan). Mætið með eyðublaðið útprentað eða sendið blaðið rafrænt á vinnuvernd@vinnuvernd.is að lágmarki 1 degi fyrir bókaðan tíma. Eyðublaðið er útfyllanlegt á rafrænu formi.

Eyðublað Samgöngustofu  

Lýsing á þjónustu:

Sérfræði- og fluglæknar Vinnuverndar bjóða upp á fjölbreytt úrval læknisskoðana er tengjast atvinnuréttindum. Má þar á meðal nefna heilbrigðisskoðanir samkvæmt reglum evrópsku Flugöryggisstofnunarinnar EASA (1178/2011) og eins vegna atvinnuréttinda til starfa á sjó samkvæmt reglum Samgöngustofu.

ATH! Vinsamlegast veljið tíma sem hentar, í næsta skrefi er valið um tegund á skoðun*

Heilbrigðisskoðanir sjómenn
Vinnuvernd ehf.

Vinsamlegast athugið, 

  • Vinsamlegast athugið, við hvetjum þig til þess að fylla út eyðublað Samgöngustofu fyrir komu í tímabókun (hægt að hlaða því niður með því að smella á takka hér að neðan). Mætið með eyðublaðið útprentað eða senda blaðið rafrænt á vinnuvernd@vinnuvernd.is að lágmarki 1 degi fyrir bókaðan tíma. Eyðublaðið er útfyllanlegt á rafrænu formi en eingöngu þarf að fylla út fram að D.lið eyðublaðsins. Ef upp koma einhver vafaatriði þá er mögulegt að fylla þau út í skoðuninni.

Eyðublað Samgöngustofu

Lýsing á þjónustu:

 Sérfræðilæknar Vinnuverndar bjóða upp á heilbrigðisskoðanir samkvæmt kröfum Samgöngustofu um atvinnuskírteini við ýmiskonar störfum á sjó. 

Um er að ræða þrjá mismunandi flokka heilbrigðisskoðanna. Nánari upplýsingar um hvern og einn flokk ásamt öðrum hagnýtum upplýsingum er að finna á síðu Samgöngustofu. Mikilvægt er að þeir sem ætli sér að bóka skoðun séu búnir að kynna sér vel hvaða atvinnuskírteini þeir eru að sækja um svo rétt heilbrigðisskoðun sé valin við bókun. 

ATH! Vinsamlegast veljið tíma sem hentar, í næsta skrefi er valið um tegund á skoðun*

Landsbankinn læknamóttaka Holtasmára
Ása Elísa Einarsdóttir
Landsbankinn læknamóttaka Holtasmára
Vinnuvernd ehf.
Almenn læknisþjónusta: 

Tímabókanir fyrir starfsfólk Landsbankans hjá Ásu Elísu sérfræðilækni. 

Seðlabankinn læknamóttaka
Fríða Guðný Birgisdóttir
Seðlabankinn læknamóttaka
Seðlabanki Íslands
Almenn læknisþjónusta: 

Tímabókanir fyrir starfsfólk Seðlabanka Íslands hjá Fríðu Guðnýju sérfræðilækni. 

Sálfræðiviðtöl
Vinnuvernd ehf.
Lýsing á þjónustu:
Sálfræðiviðtöl - faglegur stuðningur við einstaklinga

Sálfræðiviðtöl veita faglegan stuðning og aðstoð við að vinna úr tilfinningalegum áskorunum, bæta líðan og styrkja einstaklinga í daglegu lífi. Í trúnaðarsamtali við sálfræðing færð þú tækifæri til að skoða tilfinningar, hugsanir og hegðunarmynstur með markvissum aðferðum sem stuðla að jákvæðri þróun.

Sálfræðiviðtöl geta hentað fyrir þá sem vilja vinna með meðal annars:

  • Kvíða og streitu
  • Þunglyndi og vanlíðan
  • Sjálfsmynd og sjálfstraust
  • Áfallavinnu og sorgarferli
  • Samskipti og sambönd
  • Lífsstílsbreytingar og persónulegan vöxt

Viðtölin eru sniðin að þínum þörfum og veita öruggt rými þar sem þú getur unnið að bættum lífsgæðum með faglegri leiðsögn.

Þessi þjónusta er aðeins í boði fyrir starfsfólk og stjórnendur fyrirtækja sem eru í samningsþjónustu / fyrirtækjaþjónustu við Vinnuvernd.

Sálfræðiviðtöl á Selfossi
Sigrún Elísabeth Arnardóttir
Sálfræðiviðtöl á Selfossi
Tían Sálfræðistofa
Lýsing á þjónustu:

Sálfræðiviðtöl & handleiðsla.

Þessi þjónusta er aðeins í boði fyrir starfsfólk og stjórnendur fyrirtækja sem eru í samningsþjónustu / fyrirtækjaþjónustu við Vinnuvernd. 

Vinsamlegast athugið að viðtöl fara fram í Tían sálfræðistofa Austurvegur 6, 3. hæð, Selfossi

Endurbókanir - Sálfræðiviðtöl
Vinnuvernd ehf.
Lýsing á þjónustu:

Sálfræðiviðtöl & handleiðsla.

Þessi þjónusta er aðeins í boði fyrir starfsfólk og stjórnendur fyrirtækja sem eru í samningsþjónustu / fyrirtækjaþjónustu við Vinnuvernd.

Stjórnendahandleiðsla
Vinnuvernd ehf.
Lýsing á þjónustu:

Stjórnendahandleiðsla - Stuðningur og þróun fyrir árangursríka stjórnendur

Stjórnendahandleiðsla er markviss og persónuleg leiðsögn sem styður stjórnendur í að þróa leiðtogahæfni sína, efla samskiptahæfni og takast á við áskoranir í starfi. Með faglegri handleiðslu fá stjórnendur tækifæri til að skoða eigin stjórnunarstíl, fá innsýn í styrkleika sína og vinna með aðferðir sem bæta árangur þeirra og starfsánægju.

Handleiðslan getur meðal annars snúið að:

  • Leiðtogafærni og áhrifaríkri stjórnun
  • Samskipta- og teymisvinnu
  • Streitu og álagi í starfi
  • Ákvarðanatöku og stefnumótun
  • Jafnvægi milli vinnu og einkalífs

Með stjórnendahandleiðslu fá stjórnendur öruggt rými til að ræða áskoranir, fá hlutlæga ráðgjöf og þróa nýjar lausnir sem nýtast í daglegu starfi þeirra.

Þessi þjónusta er aðeins í boði fyrir starfsfólk og stjórnendur fyrirtækja sem eru í samningsþjónustu / fyrirtækjaþjónustu við Vinnuvernd.

Stjórnendahandleiðsla Hafnarfjörður