Elín er sérfræðilæknir með sérhæfingu í almennum skurðlækningum og æðaskurðlækningum (MD-PhD). Hún hefur starfað sem sérfræðingur í æðaskurðlækningum og yfirlæknir við Haukeland háskólasjúkrahús í Bergen, Noregi og æðaskurðdeild Landspítalans. Jafnframt hefur hún starfað sem dósent við Læknadeild Háskóla Íslands og professor við Kirurgisk Institutt, Björgvinjarháskóla.
Elín hefur unnið hjá Vinnuvernd síðan árið 2019 og sinnir starfstengdri heilbrigðisþjónustu en hún hefur einnig réttindi sem fluglæknir (Aeromedical Examiner) hún er einnig viðurkenndur sjómannalæknir hjá Samgöngustofu.