Starfslokanámskeið – fleiri dagsetningar

Starfslokanámskeið – fleiri dagsetningar

  • 21.05.2022

Við höfum bætt við tímasetningum á vinsæla námskeiðið okkar „Nýtt líf – eftir starfslok“

Þetta námskeið er hannað til að aðstoða fólk við að undirbúa sig og njóta þeirra breytinga sem verða eftir að það lýkur störfum.

Á þessu námskeiði verður fjallað um allar helstu breytingar sem hafa þarf í huga við starfslok á gagnlegan og skýran hátt.

  • Lífeyrismál
  • Réttindi og skerðingar hjá Tryggingastofnun Ríkisins
  • Eignastýringu og séreignasparnað
  • Húsnæðismál
  • Endurskipulagningu fjármála
  • Erfðamál og hjúkskaparstöðu
  • Áhrif hreyfingar og næringar á heilsufar
  • Tómstundir, félagslíf og áhugamál
  • Dvöl/búsetu í útlöndum
  • Áhrífaríka markmiðasetningu til að tryggja árangur

 

Bæði verður hægt að sitja námskeiðið á staðnum og að taka það í gegnum fjarfund og er efninu skipt niður á þrjá námskeiðsdaga.

Umsjónarmaður námskeiðsins er Sigþrúður Guðmundsdóttir, sem er fyrrum mannauðsstjóri á eftirlaunum með mikla reynslu af að aðstoða fólk við starfslok.

Verð fyrir hvern þátttakanda er kr. 44.900 –

Skráning með tölvupósti á [email protected] 

Alls er námskeiðið 9 klst. sem fer fram á eftirfarandi dögum:

Þriðjudagur 27. sept kl. 9:00 – 12:00

Fimmtudagur 29. sept kl. 9:00 – 12:00

Þriðjudagur 4. okt kl. 9:00 – 12:00

 

Bæði verður hægt að sitja námskeiðið á staðnum og að taka það í gegnum fjarfund.

Deila grein